RHA - Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri

RHA er miðstöð rannsóknastarfsemi við Háskólann á Akureyri.

Starfsmenn

hreidar_thor_valtysson
Hreiðar Þór Valtýsson
Sérfræðingur
hreidar@unak.is
4608920

Menntun

1983 – 1987 Menntaskólinn á Akureyri, stúdent frá náttúrufræðibraut.
1988 – 1989 Fjölbrautaskóli Suðurnesja, bóklegu atvinnuflugmannsnámi lokið.
1990 – 1994 Háskóli Íslands í líffræði, námi lauk með B.Sc. gráðu.
1994 – 1995 Háskóli Íslands í samvinnu við Hafrannsóknastofnunina, fjórða árs verkefni í sjávarlíffræði um fæðuhætti og útbreiðslu mjóra (Lycodes spp.) við Ísland, undir leiðsögn Ólafs Karvels Pálssonar. Verkefni lauk með ritgerð.
1996 –1999 University of British Columbia (UBC), Department of Zoology, Fisheries Centre, í Vancouver, Kanada. Meistaranám í fiskifræði undir leiðsögn prófessors Carl J. Walters. Námi lokið með ritgerð og formleg M.Sc. gráða veitt í maí 1999. Hér voru kannaðar ýmsar aðferðir til að fá mat á stofnstærðir flatfiska við Ísland.


Ýmis námskeið, ég hef reynt að hafa það að markmiði að sækja eitt námskeið á ári: 1986 – Einkaflugnámi lokið.  1989 – Bóklegt námskeið til flugkennararéttinda. 1996 – Vikulangt námskeið í ritun vísindagreina tekið hjá UBC. 2000 – Vikulangt námskeiði í sjóbjörgun sem hefur verið viðhaldið reglulega. 2003 – Hraðlestrarnámskeið. 2003-2004 – Námskeiðið “Stjórnendur framtíðarinnar” á vegum IMG. 90 klst nám. 2004-2005 – 30 brl skipsstjórnarréttindi - Pungapróf.


Starfsferill

1987 – 1988 DNG h/f á Akureyri, samsetning á færavindum
1989 Flugleiðir, við hleðslu og afgreiðslu á Akureyrarflugvelli (sumarvinna).
1989 – 1991 Útgerðarfélag Akureyringa h/f, háseti og netamaður á togurum.
1993 – 1998 Hafrannsóknastofnunin í Reykjavík og á Akureyri. Aðstoðarmaður í rannsóknum, bæði sumarvinna (með námi) og heilsársvinna. 
1998 – nú Hafrannsóknastofnunin á Akureyri (sérfræðingur frá 1998 og útibústjóri eftir sept. 1999, 50% starf) og Háskólinn á Akureyri, sjávarútvegsbraut (lektor, 50% starf). Starfið við Hafrannsóknastofnunina felst bæði í sjálfstæðum rannsóknum, rannsóknum í samvinnu við sérfræðinga Hafrannsóknastofnunarinnar í Reykjavík og stjórnun sýnatöku úr lönduðum afla. Starfið við HA felst í að sjá um alla kennslu í fiskifræði I (FIF1103) og sjávarlíffræði (SJL1103).

 

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf