Flýtilyklar
Rannsóknir á samfélagsáhrifum á Austurlandi
föstudagur 24.október 2008
Um þessar mundir er í gangi könnun meðal íbúa á áhrifasvæði álvers- og virkjanaframkvæmda á Austurlandi.
Könnun þessi er einnig send til íbúa í Eyjafirði og er úrtakið alls 4.200 manns. Á næstu vikum verður send út könnun
til fyrirtækja á áhrifasvæði framkvæmdanna. Báðar þessar kannanir eru liður í gagnaöflun fyrir rannsókn á
samfélagsáhrifum framkvæmdanna en henni mun ljúka á næsta ári.
Nýjustu rannsóknaskýrslunni var skilað til Iðnaðarráðherra og Iðnaðarnefndar Alþingis 11. júní síðastliðinn og lýsir hún stöðu samfélagsins í árslok 2007.
Þegar hafa komið komið út fimm skýrslur á vegum rannsóknarverkefnisins. Eru þær allar vistaðar á vef RHA og má smella á hlekkina hér að neðan til að hlaða þeim niður og fræðast um verkefnið.

- Skýrsla um könnun meðal fólks á Austur- og Norðausturlandi 2004 (Kjartan Ólafsson, 2005).
- Skýrsla um íbúafjölda og þörf á íbúðarhúsnæði árið 2008 (Jón Þorvaldur Heiðarsson, 2005).
- Fyrri áfangaskýrsla verkefnisins, um stöðulýsingu og upphaf framkvæmda á Austurlandi (Kjartan Ólafsson, ritstjóri, 2006).
- Skýrsla um póstkönnun meðal almennings vorið 2007 (Hjalti Jóhannesson og Tryggvi Guðjón Ingason, 2007).
- Áfangaskýrsla II, stöðulýsing í árslok 2007. (Hjalti Jóhannesson, ritstjóri, 2008)