Flýtilyklar
Rannsókn á samfélagsáhrifum álvers- og virkjunarframkvæmda á Austurlandi - kynning
fimmtudagur 30.september 2010
Fimmtudaginn 7. október verður kynnt á Reyðarfirði lokaskýrsla rannsóknar á samfélagsáhrifum á Austurlandi.
Verkefnið stóð yfir frá árinu 2004 og eru skýrslur í verkefninu orðar alls níu talsins. Á fundinum munu höfundar
lokaskýrslu rannsóknarinnar gera grein fyrir helstu niðurstöðum hennar. Í rannsókninni hefur verið fylgst með þróun
samfélagsþátta s.s. íbúafjölda, efnahag, vinnumarkaði, húsnæðismarkaði, opinberri grunngerð, sveitarfélögum,
þjónustu, atvinnuháttabreytingum og samfélagi og lífsstíl. Allar skýrslur verkefnisins má finna hér á vefsíðu RHA.
Tími og staður:
7.október milli kl 10-12 í Fróðleiksmolanum (húsnæði Þekkingarnets Austurlands og AFLS), Búðareyri 1, Reyðarfirði.
Dagskrá:
10.00 Fundarsetning, almenn kynning á fundarefni
10.05 Hjalti Jóhannesson, RHA: Afmörkun rannsóknar, íbúafjöldi og vinnumarkaður
10.30 Jón Þorvaldur Heiðarsson, RHA: Efnahagur og húsnæðismarkaður
10.50 Valtýr Sigurbjarnarson, RHA: Opinber grunngerð og sveitarfélög
11:20 Enok Jóhannsson, ÞFA: Þjónusta og atvinnuháttabreytingar
11:40 Kjartan Ólafsson, RHA og HA: Samfélag og lífsstíll





