RHA - Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri

RHA tekur að sér umsjón Sprotasjóðs fyrir menntamálaráðuneyti RHA hefur skrifað undir samning við menntamálaráðuneytið um umsjón og umsýslu Sprotasjóðs

RHA tekur að sér umsjón Sprotasjóðs fyrir menntamálaráðuneyti

RHA hefur skrifað undir samning við menntamálaráðuneytið um umsjón og umsýslu Sprotasjóðs til næstu þriggja ára. Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í starfi leik- grunn- og framhaldsskóla í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá þessara skólastiga.

Umsjón sjóðsins er fjölþætt, s.s.   umsjón með stjórnarfundum, umsýslu umsókna í sjóðinn á umsóknarvef stjórnarráðsins og vinnu umsókna í hendur stjórnar eftir þeim reglum og viðmiðum sem hún setur fram. Auk þess felst í samningnum að vinna tillögur stjórnar til menntamálaráðherra um úthlutun úr sjóðnum í samræmi við reglur Sprotasjóðs og annast formleg samskipti við umsækjendur, ásamt því að hafa umsjón með  styrkveitingum frá Sprotasjóði og  með rafrænum gögnum og upplýsingum ásamt birtingu áfanga- og lokaskýrslna verkefna sem styrk hljóta. Þá mun RHA sjá um  skil á skýrslu til menntamálaráðuneytis um rekstur sjóðsins.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf