Flýtilyklar
Alþingis- og sveitarstjórnarkosningar
Akureyrarvagn 2001
Árið 2001 stóð RHA fyrir viðhorfskönnun meðal Akureyringa varðandi ýmis málefni, þ.m.t. stjórnmál. Spurt var hvaða stjórnmálaflokk viðkomandi kjósi og komi til með að kjósa í sveitarstjórnarkosningunum. Einnig var spurt út í ánægju með störf meirihluta bæjarstjórnar Akureyrarbæjar og hvort viðkomandi gæti nefnt einhverja bæjarfulltrúa. Bakgrunnsbreytur eru: kyn, fæðingarár, hverfi, menntun, staða á vinnumarkaði og fjölskyldutekjur.
Framkvæmd könnunar: Símakönnun dagana 7.-11. apríl 2001.
Úrtak: 517 manns á aldrinum 18-75 ára búsettir á Akureyri
Svarhlutfall: 67,3%
Akureyrarvagn 2002
Árið 2002 stóð RHA fyrir viðhorfskönnun meðal Akureyringa varðandi ýmis málefni, þ.m.t. stjórnmál. Spurt var hvaða stjórnmálaflokk viðkomandi kjósi og komi til með að kjósa í sveitarstjórnarkosningunum. Einnig var spurt út í ánægju með störf meirihluta bæjarstjórnar Akureyrarbæjar og hvort viðkomandi vildi sjá einhvern sérstakan sem bæjarstjóra á Akureyri. Einnig var spurt um hvað flokk viðkomandi myndi kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag. Bakgrunnsbreytur eru: kyn, fæðingarár, hverfi, hjúskaparstaða, menntun, fjöldi á heimili, staða á vinnumarkaði og fjölskyldutekjur.
Framkvæmd könnunar: Símakönnun dagana 2.-14. apríl 2002.
Úrtak: 678 manns á aldrinum 18-75 ára búsettir á Akureyri
Svarhlutfall: 66%





