Flýtilyklar
Búferlaflutningar
Akureyrarvagn 2001
Árið 2001 stóð RHA fyrir viðhorfskönnun meðal Akureyringa varðandi ýmis málefni, þ.m.t. búferlaflutninga. Spurt var hvort viðkomandi teldi það líklegt eða ólíklega að hann muni á næstu tveimur til þremur árum flytja frá Akureyri. Þeir sem töldu það mjög eða frekar líklegt voru síðan spurðir áfram hvor þeir myndu flytja og helstu ástæðu þess að flutningar stæðu fyrir dyrum. Bakgrunnsbreytur eru: kyn, fæðingarár, hverfi, menntun, staða á vinnumarkaði og fjölskyldutekjur.
Framkvæmd könnunar: Símakönnun dagana 7.-11. apríl 2001.
Úrtak: 517 manns á aldrinum 18-75 ára búsettir á Akureyri
Svarhlutfall: 67,3%
Akureyrarvagn 2002
Árið 2002 stóð RHA fyrir viðhorfskönnun meðal Akureyringa varðandi ýmis málefni, þ.m.t. búferlaflutninga. Spurt var hvort viðkomandi teldi það líklegt eða ólíklega að hann muni á næstu tveimur til þremur árum flytja frá Akureyri. Þeir sem töldu það mjög eða frekar líklegt voru síðan spurðir áfram hvor þeir myndu flytja og helstu ástæðu þess að flutningar stæðu fyrir dyrum. Bakgrunnsbreytur eru: kyn, fæðingarár, hverfi, menntun, staða á vinnumarkaði og fjölskyldutekjur.
Framkvæmd könnunar: Símakönnun dagana 2.-14. apríl 2002.
Úrtak: 678 manns á aldrinum 18-75 ára búsettir á Akureyri
Svarhlutfall: 66%





