Flýtilyklar
ESPON

ESPON (European Observation Network on Territorial Development and Cohesion) er ein af svæða- eða byggðatengdu aðgerðaáætlunum Evrópusambandsins, Interreg III C-áætlun, fjármögnuð af Byggðaþróunarsjóði ESB og aðildarlöndunum.
Aðild að ESPON eiga öll lönd Evrópusambandsins og lönd sem sótt hafa um aðild að sambandinu auk Noregs, Sviss og Liechtenstein. Ísland varð aðili að ESPON á öðru starfstímabili áætlunarinnar, frá 2007-2013. Skrifstofa áætlunarinnar í Luxemburg er ekki stór en styrkir hennar hafa leitt af sér umfangsmikið samstarfsnet um byggðarannsóknir háskóla og rannsóknastofnana um alla Evrópu. Fyrsta starfstímabilið, frá 2002 til 2006, öfluðu og miðluðu á annað hundrað evrópskra háskóla og rannsóknastofnana mikillar þekkingar, sem einfalt er að nálgast á heimasíðu ESPON.
Einkenni rannsóknaverkefna á vegum ESPON er samanburður milli svæða, víðtæk framsetning upplýsinga á kortum og síðan hinar miklu kröfur um fagleg vinnubrögð. Rannsóknastyrkir hafa aðallega verið veittir fjölþjóðlegum rannsóknateymum háskóla og annarra rannsóknastofnana á sviði byggðaþróunar. ESPON-rannsóknir hafa þegar haft áhrif á stefnumótun ESB í byggðamálum og svo mun áreiðanlega verða í næstu framtíð.
Á tímabilinu 2007-2013 verða fimm megináherslur fyrir aðgerðir og rannsóknir sem taldar eru upp hér á eftir og hlutfall hverrar áherslu af útgjöldum ESPON sýnt innan sviga:
- Hagnýtar rannsóknir á byggðaþróun, samkeppnishæfni og aðlögun (42,4%).
- Verkefnamiðaðar rannsóknir á grundvelli óska notenda (14,4%).
- Vísindalegur grundvöllur ESPON Vísindavettvangar og –áhöld (13,5%).
- Fjármögnun, eignarhald og þátttaka (12,2%).
- Tæknileg aðstoð, greiningarstuðningur og samskipti (17,5%).
Gott og auðskilið yfirlit yfir starf ESPON áætlunarinnar er hér.
Nánari lýsingu á áætluninni er að finna í ESPON 2013 Programme.
Auglýst er eftir styrkumsóknum undir þremur fyrstu áherslunum en hinar eru starfsáherslur. Undir annarri áherslunni eru átta skilgreind rannsóknasvið fyrir styrkhæf verkefni.
Háskólinn á Akureyri er tengiliður ESPON á Íslandi – ECP (ESPON contact point) samkvæmt samningi við Byggðastofnun, sem á fulltrúa í stjórnarnefnd ESPON í umboði iðnaðarráðuneytisins. Hlutverkið er að tengja þannig íslenska og evrópska háskóla og rannsóknastofnanir á sviði byggðarannsókna og aukinheldur þessar stofnanir við ESPON. ECP fyrir Ísland er dr. Grétar Þór Eyþórsson prófessor við Háskólann á Akureyri, (gretar@unak.is).
Mikilvægi ESPON-starfsins felst í því að fylgjast með rannsókna- og stefnumótunarvinnu á sviði byggðamála í Evrópusambandinu, á öflugri þátttöku íslenskra háskóla í hinum fjölþjóðlegu byggðarannsóknum sem styrktar eru og á áhrifum af því starfi á umræðu og stefnumótun í byggðamálum á Íslandi.





