Flýtilyklar
Leyfi
Áríðandi tilkynning
Samkvæmt tilkynningu frá rektor Háskólans á Akureyri er umsóknarfrestur um
rannsóknamisseri sem ljúka átti þann 1. febrúar 2009 framlengdur um óákveðinn tíma. Nýr lokadagur fyrir umsóknir verður
auglýstur síðar.
Rannsóknamisseri Prófessorar, dósentar, lektorar og aðjúnktar við Háskólann á Akureyri geta sótt um rannsóknamisseri á grundvelli kjarasamnings fjármálaráðherra og Háskólans á Akureyri en þar segir í grein 10.1.3:
„Heimilt er háskólaráði að lækka eða fella niður kennslu- og stjórnunarskyldu háskólakennara
1 eða 2 misseri í senn til þess að gera honum kleift að verja auknum hluta vinnutíma síns til rannsóknarstarfa. Kennslu- og stjórnunarskylda
á starfstíma kennarans að meðtöldum leyfistímanum verði að jafnaði eigi lægri en 50% en háskólaráði er þó
heimilt að víkja frá þessu skilyrði þegar sérstaklega stendur á."
Reglur um rannsóknamisseri voru samþykktar á fundi Háskólaráðs Háskólans á Akureyri 28.01.2008. Umsókn um rannsóknamisseri skal skila á rafrænu formi á rannsoknir@unak.is og undirritað til RHA fyrir 1. febrúar ár hvert.
Upplýsingar vegna dagpeninga ríkisstarfsmanna á ferðalögum er að finna á slóðinni www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.html
StarfsþjálfunarleyfiKennarar og aðrir starfsmenn, sem veitt er leyfi, skulu skila skýrslum um störf sín á leyfistímabilinu eigi síðar en 2 mánuðum eftir að leyfi lýkur. Fastráðnir starfsmenn háskólans sem ekki hafa rannsóknaskyldu og starfað hafa við háskólann í fjögur ár hið minnsta geta sótt um leyfi til starfsþjálfunar í allt að tvo mánuði. Reglur um starfsþjálfunarleyfi voru samþykktar á fundi Háskólaráðs Háskólans á Akureyri 28.02.2007.
Umsókn um starfsþjálfunarleyfi skal berast yfirmanni viðfangs eigi síðar en þremur mánuðum fyrir fyrirhugað leyfi. Ef umsækjandi hefur tök á að sækja fyrr um, skal það gert og þá er kostur að umsókn hafi borist fyrir samþykkt rekstraráætlunar viðkomandi árs.





