Flýtilyklar
NPP
Northern Periphery Programme (NPP) er Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins. Núverandi áætlun er í gildi frá 2007-2013 og er ætlað að efla atvinnu-, efnahags- og félagslega samvinnu svæða og landa á norðurslóðum með samstarfsverkefnum yfir landamæri á milli einstaklinga, fyrirtækja og stofnana.
Háskólinn á Akureyri, stofnanir innan skólans (þar á meðal RHA) og samstarfsstofnanir hans hafa verið þátttakendur í NPP samstarfsverkefnum, bæði í núverandi áætlun og fyrri áætlun. Verkefnin eru fjármögnuð með 50% framlagi frá NPP en afla þar 50% mótframlags í hvert verkefni. Verkefnin hafa verið mjög fjölbreyt og misstór.
Áætlun 2007-2013
North Hunt, Sustainable Hunting Tourism
Samstarfsverkefni Íslands, Finnlands, Svíþjóðar, Skotlands og Kanada. Íslenskir þátttakendur eru RHA - Rannsókna- og
þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri, Rannsóknamiðstöð ferðaþjónustunnar (RMF) og Veiðistjórnunarsvið
Umhverfisstofnunar. Þetta verkefni byrjaði með forverkefnisstyrk og fékk síðan aðalstyrk og hefur verið í gangi síðan 2006.
Verkefninu lýkur 2010. Heimasíðaverkefnisins er http://www.north-hunt.org/.
Co-Safe, The cooperation for safety in sparsely populated aresa
Samstarfsverkefni milli Íslands, Finnlands, Grænlands, Svíþjóðar og Skotlands. Íslenskir þátttakendur eru FSA
Háskólasjúkrahús, Akureyri og Sjúkraflutningaskólinn í samstarfi við fjölmarga innlenda aðila, þar á meðal
Háskólann á Akureyri.
Clim-ATIC
Samstarfsverkefni milli Finnlands, Grænlands, Noregs, Svíþjóðar og Skotlands. RHA - Rannsókna- og
þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri og að þessu verkefni á forstigum þess en varð því miður að draga sig
út úr því vegna þess að ekki tókst að fjármagna íslenskt mótframlag í verkefnið. Verkefninu lýkur
2010. Heimasíðaverkefnisins er http://www.clim-atic.org/.
Áætlun 2002-2007
Ambulance Transport & Services in Rural Areas - Atsruar
Samstarfsverkefni milli Íslands, Svíþjóðar og Skotlands.
Íslenskir þátttakendur eru FSA Háskólasjúkrahús í samstarfi við fjölmarga Sjúkraflutningaskólann,
Slökkviliðið á Akureyri, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Háskólann á Akureyri og Vegagerðina.
Community Learning Networks (CLN-NPA II)
Samstarfsverkefni milli Íslands, Finnlands, Noregs, Svíþjóðar og Skotlands.
Íslenskir þátttakendur eru Háskólinn á Akureyri ásamt símenntunarmiðstöðvum á landsbyggðinni.





