Flýtilyklar
North Hunt
Nort Hunt er alþjóðlegt verkefni til þriggja ára (2008-2010). Verkefnið gengur út á þróun sjálfbærrar skotveiðitengdrar ferðaþjónustu á jaðarsvæðum á norðurslóðum. Þannig stuðlar verkefnið að fjölbreytni í atvinnulífi og skýtur frekari stoðum undir vaxandi atvinnugrein með þróun starfsumhverfis og rekstrargrundvallar fyrirtækja.
Markmið verkefnisins er að styðja við þróun skotveiðitengdrar ferðaþjónustu sem mun auka á fjölbreytileika hagkerfisins á
norðurslóðum. Til þess að ná meginmarkmiðinu hefur verkefnið fimm undirmarkmið. Þau eru að:
- Þróa sjálfbæra og samkeppnishæfa viðskiptahugmynd sem byggir á veiðihefðum norðurslóða.
- Þróa starfsumhverfi fyrirtækja til að draga úr hindrunum sem mæta frumkvöðlum í þessari grein án þess að
minnka kröfur um sjálfbærni og umhverfisvænar veiðar.
- Efla samvinnu ólíkra hagsmunaaðila innan landa sem og milli landa um þróun skotveiðitengdrar
ferðaþjónustu, s.s. landeigenda, veiðimanna, stofnana og ferðaþjónustuaðila.
- Þróa norrænt "vörumerki" eða "concept" fyrir veiðar á norðurslóðum.
- Þróa þjálfunar- og námsefni sem leiðbeint gæti til framtíðar um þróun uppbyggingar skotveiðitengdrar
ferðaþjónustu.
Niðurstöður verkefnisins munu styðja við frekari þróun fyrirtækja sem selja ferðaþjónustu tengdri skotveiði og undirbúa jarðveginn fyrir ný fyrirtæki í Norður Evrópu. Niðurstöður verkefnisins munu einnig gefa mikilvægar upplýsingar til stuðnings ákvarðanatöku bæði fyrir stjórnendur og frumkvöðla og stuðla að jákvæðu áliti samfélagsins fyrir starfsumhverfi fyrirtækja.
Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu verkefnisins en þar er einnig hægt að gerast áskrifandi af fréttabréfi verkefnisins o.fl.





