Flýtilyklar
Rannsóknir
Þau verkefni sem sérfræðingar RHA vinna að eru margvísleg og varða flest svið samfélagsins. Áherslur hafa þó nokkuð breyst frá því RHA var stofnað 1992. Verkefni eru unnin fyrir og í samstarfi við ýmsa innlenda og erlenda aðila. Þá er einnig nokkuð um að starfsfólk RHA veiti ráðgjöf um framkvæmd rannsókna, gerð spurningalista og úrvinnslu, bæði innan Háskólans sem utan. Nánar má lesa um helstu svið rannsókna hér.
Hægt er að sjá yfirlit yfir þau verkefni sem hafa verið unnin af starfsmönnum RHA, flokkað eftir árum og einnig þeim sem eru í vinnslu með því að nota hlekkina vinstra megin á þessari síðu.





