RHA - Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri

Yfirlit yfir sjóði sem starfsmenn Háskólans á Akureyri hafa aðgang að. Rannsóknasjóður Háskólans á Akureyri Rannsóknasjóður Háskólans á Akureyri hefur það

Sjóðir

Yfirlit yfir sjóði sem starfsmenn Háskólans á Akureyri hafa aðgang að.

Rannsóknasjóður Háskólans á Akureyri

Rannsóknasjóður Háskólans á Akureyri hefur það hlutverk að efla rannsóknir og vísindastörf á vegum háskólans. Umsóknafrestur er auglýstur ár hvert og hefur hann venjulega verið í byrjun desember.

Reglur um rannsóknasjóð Háskólans á Akureyri
Hér má nálgast umsóknareyðublað vegna rannsóknasjóðs
Hér má nálgast framvindu- og lokaskýrslu fyrir rannsóknasjóð

Hér má sjá fyrri úthlutanir úr rannsóknasjóði Háskólans á Akureyri 

Háskólasjóður KEA        

Háskólinn á Akureyri og KEA hafa gert með sér samkomulag um rannsóknarstyrki á árinu 2011.  KEA vill stuðla að eflingu rannsókna við HA og til að mæta því markmiði mun KEA úthluta 2,5 miljónum á árinu 2011 til verkefna sem tengjast ransóknum við HA.  Einnig verða veitt á árinu 2011 verðlaun fyrir námsárangur.  Umsóknareyðublöð berist á skrifstofu RHA í þríriti og á rafrænu formi á rannsoknir@unak.is.

Umsóknafrestur um rannsóknarstyrk er 15. apríl nk.   umsóknareyðublöð berist á skrifstofu RHA í þrírit og á rafrænu formi á rannsoknir@unak.is.

Hér má sjá fyrri úthlutanir úr Háskólasjóði KEA

Verkefnasjóður Háskólans á Akureyri (Akureyrarsjóður)

Verkefnasjóður Háskólans á Akureyri veitir styrki til smærri verkefna á ýmsum sviðum skólans, samstarfsstofnana hans og nemendafélaga. Samstarfsstofnanir HA eru t.d. Hafrannsóknastofnun, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og Stofnun Vilhjálms Stefánssonar. Það er Akureyrarbær sem veitir styrkinn til Verkefnasjóðs Háskólans og er sjóðnum ætlað að koma í stað fjölda smærri styrkja sem Akureyrarbær veitti áður til Háskólans á Akureyri.

Styrknum er ætlað að styðja:
1) Ráðstefnur eða meiriháttar samkomur, sem haldnar eru á Akureyri eða hafa þýðingu fyrir svæðið.
2) Útgáfu- og kynningastarfsemi.
3) Menningarstarf eða annað sem stjórnin telur falla að þessum reglum.

Heildarfjárhæð til úthlutunar er 1 milljón króna árið 2010.

Úthlutun er í höndum þriggja manna stjórnar sem skipuð er af háskólaráði til tveggja ára. Einn stjórnarmaður skal koma frá einni af samstarfsstofnunum HA. Sjóðstjórn skilar skýrslu til bæjarráðs Akureyrabæjar í janúar ár hvert um þá styrki sem veittir hafa verið úr sjóðnum.

Sjóðstjórn skal móta reglur um meðhöndlun umsókna og umsóknafresti.

Við mat á umsóknum mun sjóðstjórn taka tillit til eftirfarandi atriða:
1) Gildi fyrirhugaðs verkefnis.
2) Að verkefni sé skýrt afmarkað, markmið skýr og vel rökstudd.
3) Þekkingar og færni umsækjanda.
4) Að verkáætlun sé traust og trúverðug og kostnaðaráætlun sé í samræmi við markmið.
5) Að verkefni feli í sér mikilsvert framlag á sínu sviði eða feli í sér nýmæli.

Heimilt er að láta styrki til verkefna sem unnin eru í samstarfi við Akureyrarbæ t.d. vegna sameiginlegra kynningarmála eða ráðstefnuhalds hafa forgang við úthlutun.

Taka skal fram að styrkir eru ekki veittir þar sem ljóst er að aðrir sjóðir eru betur fallnir til að styrkja viðkomandi verkefni. T.d. eru ekki veittir styrkir til rannsókna þar sem Rannsóknasjóður HA er betur fallinn til að styrkja slík verkefni. Ennfremur, styrkir Verkefnasjóður Háskólans ekki verkefni sem eru hluti af fastri rekstrarstarfsemi Háskólans á Akureyri.

Að loknu verkefni skal styrkhafi gera grein fyrir verkefninu, t.d. í formi stuttrar skýrslu, vefsíðu, fyrirlesturs eða með öðrum hætti sem sjóðsstjórn samþykkir. Sé styrkveiting notuð til að fjármagna hluta af mun stærra verkefni sem gerð verður sérstök grein fyrir þarf ekki að skila sérstakri skýrslu vegna hlutans sem verkefnasjóður styrkti.

Rétt til að sækja um styrk eiga allir starfsmenn Háskólans á Akureyri, starfsmenn samstarfsstofnanna og nemendur.

Umsóknum má skila hvenær sem er. Sjóðsstjórn skal hittast a.m.k. á tveggja mánaða fresti til að ræða og ákvarða styrkveitingar. Til viðmiðunar setur stjórnin sér eftirfarandi dagsetningar til afgreiðslu umsókna:

10. febrúar
10. apríl
10. júní
10. ágúst
10. október
10. desember

Almennar styrkveitingar skulu ekki nema meira en 100 000 krónum, hægt er þó að víkja frá því í undantekningartilfellum. Skal sjóðsstjórn sjá um að leggja mat á hvort slíkt eigi við.

Umsóknareyðublað um styrk úr Verkefnasjóði Háskólans á Akureyri ber að senda útfyllt á skrifstofu RHA og á rafrænu formi á rannsoknir@unak.is.

Hér má sjá fyrri úthlutanir úr verkefnasjóði Háskólans á Akureyri

Aðrir sjóðir

Rannís (Rannsókna- og tækniþróunarsjóður)  
Rannís (Tækjasjóður)
Rannís (Rannsóknanámssjóður)

Sjóðir norðurlandaráðs

Norfa, Norræni rannsóknaháskólinn

Rammaáætlun ESB (sjá einnig íslenskan vef)

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf