RHA - Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri

Úthlutun úr Sprotasjóði 2012 Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2012-2013. Sprotasjóður

Sprotasjóður 2012-2013

Úthlutun úr Sprotasjóði 2012

Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2012-2013. Sprotasjóður er sameiginlegur fyrir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.

Áherslusvið sjóðsins voru að þessu sinni:

  •  Þróun skólanámskrár með hliðsjón af nýrri menntastefnu
  •  Virkt lýðræði, mannréttindi og samskipti í skólum

Umsóknarfrestur var til 29. febrúar sl. og bárust 190 umsóknir að þessu sinni. Stjórn sjóðsins, sem skipuð er fulltrúum frá Kennarasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samstarfsnefnd háskólastigsins og mennta- og menningarmálaráðuneyti, mat umsóknir og gerði tillögur til mennta- og menningarmálaráðherra um styrkveitingar. Mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að tillögu stjórnar, að veita styrki til 46 verkefna að upphæð rúmlega 43. millj. kr.

Hér má sjá skrá um þau verkefni sem hlutu styrk fyrir skólaárið 2012-13.

Styrkirnir dreifðust með eftirfarandi hætti milli skólastiga og landshluta

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf