Flýtilyklar
Stigamat kennara
Aðjúnktar, lektorar og dósentar Háskólans eiga að skila umsókn vegna stigamats fyrir 1. febrúar ár hvert (athugið að breyting er á skilum fyrir árið 2012). Umsóknir ber að senda undirritaðar í pappírseintaki til stjórnsýslu rannsókna í húsnæði RHA og einnig í tölvutæku formi til: rannsoknir@unak.is Auk grunnupplýsinga er nauðsynlegt að leggja fram þau rit- eða hugverk sem meta á til stigamats í pappírseintaki. Þeir aðjúnktar, lektorar og dósentar sem ekki hafa farið í stigamat áður verða að senda upplýsingar í s.k. grunnmat, þ.e.a.s. upplýsingar frá upphafi starfsferils eins og við á. Aðrir senda inn upplýsingar vegna s.l. árs.
Prófessorar skili umsóknum sínum til stjórnsýslu rannsókna fyrir 1. febrúar ár hvert í húsnæði RHA sem mun sjá um að koma gögnunum áfram til rannsóknasviðs Háskóla Íslands sem metur ritverk og rannsóknir fyrir alla prófessora í ríkisháskólum á Íslandi.
Athugið að niðurstöður stigamats geta haft áhrif á uppröðun í launarima og rannsóknaálag auk þess sem umsóknir um stigamat er jafnframt umsókn í Vinnumatssjóð. Það er afar mikilvægt að senda inn upplýsingar á réttum tíma. Hugsanlegar launabreytingar taka gildi frá 1. september ár hvert.
Vinsamlegast athugið: Breytingar eru á matskerfinu fyrir störf á árinu 2010, kynnið ykkur því vandlega leiðbeiningar vegna umsókna og athugið að nú eru ekki sérstök eyðublöð heldur á hver starfsmaður að útbúa sína eigin umsókn sjá dæmi. Einnig má sjá hér matsramma og leiðbeiningar fyrir nýja matskerfið. Við hvetjum alla starfsmenn til að skila eyðublaði fyrir umsóknir í sjóði sem sótt var um á á árinu 2010.
- ERIH-listar 2009 (.exel). Allir listar og fagflokkar. Flokkað eftir A, B og C. Sbr. lið A4 í matskerfinu.
-
ERIH-listar 2009 (.exel). Flokkaðir eftir fagflokkum. Sbr. lið A4 í matskerfinu.
-
ISI 10% efstu - Listi yfir tímarit með hæsta áhrifastuðul (10%) á sínu fræðasviði. Allir flokkar
-
Íslensk tímarit stigagjöf. Stigagjöf fyrir greinar eftir könnun 2011.
-
Evaluation System - English-
-
Hér að neðan er að finna upplýsingar um nýtt matskerfi:
- Matskerfi opinberra háskóla
- Álit Vísindanefndar opinberra háskóla, dags. 18. desember 2009
- Álit nefndar um fyrirkomulag mats á störfum prófessora, dags. 6. nóvember 2009
- Eldra matskerfi (Verk 2009 og fyrr)
- Eyðublað (matsrammi)
Vinnumatssjóður
Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti á fundi sínum 28. janúar 2008
nýjar reglur um Vinnumatssjóð.
Ráðningar starfsfólks og framgangur í starfi
Reglur um störf dómnefndar, ráðningar og framgang
háskólakennara við Háskólann á Akureyri nr 1207/2007





