RHA - Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri

Sjálfstæð stofnun innan Háskólans á Akureyri RHA - Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri var stofnuð árið 1992 sem sjálfstæð eining innan

Um RHA

Sjálfstæð stofnun innan Háskólans á Akureyri
RHA - Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri var stofnuð árið 1992 sem sjálfstæð eining innan Háskólans á Akureyri. RHA aflar sér tekna með rannsókna-verkefnum og ráðgjöf fyrir ýmsa aðila innanlands sem utan.  Hlutverk RHA er að efla rannsóknastarfsemi við Háskólann á Akureyri og styrkja tengsl hans við atvinnulífið, þá skal RHA vinna að þróun nýrra verkefna innan HA og koma þeim í réttan farveg.

Sem dæmi um rannsóknasvið má nefna:

  • Samfélagsrannsóknir
  • Viðhorfskannanir
  • Launaúttektir

Auk þess að sinna rannsóknum veitir starfsfólk RHA ráðgjöf um framkvæmd rannsókna, spurningalistagerð og úrvinnslu bæði innan Háskólans sem utan.

Starfsemi RHA er einkum fjórþætt:

  • Umsýsla og þjónusta við rannsóknir innan HA til að styrkja rannsóknir og auka fjármagn til þeirra úr samkeppnissjóðum.
  • Vinna að þróunar- og sérverkefnum á vegum HA.
  • Vera tengiliður við setur og stofnanir sem starfa innan eða í tengslum við HA og skapa umgjörð til að hægt sé að hýsa litlar stofnanir.
  • Vera tengiliður HA við atvinnulífið með því að sinna verkefnum fyrir atvinnulífið og stuðla að þekkingaryfirfærslu.

Að jafnaði starfa 14-15 manns hjá RHA, þar af er unnið í 7 stöðugildum við rannsóknir. Aukin verkefni RHA á sviði rannsóknaþjónustu fyrir háskólann hafa aukist og einnig hefur færst í vöxt að HA kjósi að vista tiltekin verkefni hjá RHA. 

Fagleg breidd starfsmanna og verkefna
Sérfræðingar RHA hafa fjölbreyttan bakgrunn, bæði hvað varðar menntun og reynslu. Starfsmenn eru með menntun á sviði auðlindafræði, kennslufræði, upplýsingafræði, félagsfræði, landfræði, nútímafræði, þróunarfræði, náttúrufræði, viðskiptafræði, sjávarútvegsfræði, fiskifræði og hagfræði.

Víðtæk reynsla er t.d. úr  ráðuneytum og stofnunum á vegum ríkisins, sveitastjórnarmálum, rannsóknum, kennslu, blaðamennsku og úr viðskiptalífi (m.a. bönkum, verslunum og fyrirtækjum tengdum sjávarútvegi).

Verkefni RHA eru fjölbreytt og eru bæði unnin innanlands sem og í samstarfi við erlendar rannsóknar- og háskólastofnanir. Á vef RHA er listi yfir rannsóknarverkefni sem unnin hafa verið á undanförnum árum.

Tengsl við háskólasamfélagið
RHA er staðsett í rannsókna- og nýsköpunarhúsinu Borgum á háskólasvæðinu á Sólborg sem skapar aðstæður fyrir fagleg tengsl við aðrar stofnanir sem starfa á svæðinu og háskólasamfélagið enda var eitt meginmarkmiðið með byggingu þessa húss að skapa slíkt umhverfi.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf