Um Sprotasjóð

Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri annaðist umsýslu Sprotasjóðs frá árinu 2009 samkvæmt samningi við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Verkefnið var flutt til Rannís í ársbyrjun 2022.

Sprotasjóður er sameiginlegur sjóður fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá, samkvæmt 15. gr. laga nr. 90/2008 um leikskóla, 34. gr. Laga nr. 91/2008 um grunnskóla og 53. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla. Til sjóðsins renna fjármunir sem veittir eru á fjárlögum hverju sinni.  Nánar má sjá um hlutverk sjóðsins í reglugerð hans Nr. 242/2009.