Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Innviðasjóði

Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Innviðasjóði, en hlutverk sjóðsins er að byggja upp rannsóknainnviði á Íslandi. Umsóknarfrestur er til 15. mars 2018, kl. 16:00.

Innviðasjóður veitir styrki til kaupa á tækjum, gagnagrunnum og hugbúnaði og öðrum þeim búnaði sem telst mikilvægur fyrir framfarir í rannsóknum.

Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér vel reglur sjóðsins áður en umsókn er gerð.

Sjá nánar hér á heimasíðu Innviðasjóðs