Vaðlaheiðargöng: Hvers vegna og fyrir hverja? Málstofa um niðurstöður úr könnun RHA meðal íbúa

Tímasetning: 22. maí 2015 kl. 14.00 – 16.15 
Staðsetning: Stofu M101 í Sólborg við Norðurslóð
Fundarstjóri: Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir, forstöðumaður RHA

  • Hjalti Jóhannesson, sérfræðingur RHA: Frá Víkurskarði til Vaðlaheiðarganga – viðhorf og væntingar
Hjalti Jóhannesson
  • Kaffihlé
 
  • Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við Viðskiptadeild HA: Vaðlaheiðargöng opna – hvað svo?
Jón Þorvaldur Heiðarsson
  • Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við viðskiptadeild HA: Vaðlaheiðargöng – samfélagslegur ávinningur?
Grétar Þór Eyþórsson
  • Umræður
 

Á málstofunni verða teknar saman helstu niðurstöður könnunar sem framkvæmd var að frumkvæði RHA í október og nóvember síðastliðnum. Spurt var að stöðu þjónustu, vinnumarkaðar og samfélagsþróunar í sveitarfélögum á áhrifasvæði Vaðlaheiðarganga. Einnig var spurt að viðhorfum til núverandi samgangna og væntingum til Vaðlaheiðarganga, hverju þau muni helst breyta fyrir svarendur og á hvern hátt þeir búist við að nýta þessa samgöngubót í sínu daglega lífi. Margar áhugaverðar niðurstöður komu fram og munur á viðhorfum karla og kvenna, svo og eftir því hvort svarendur eru búsettir austan eða vestan Vaðlaheiðar.

Allir velkomnir