Borgarhlutverk Akureyrar

Torfunefsbryggja og miðbæjarsvæðið
Torfunefsbryggja og miðbæjarsvæðið

RHA hefur hlotið styrk frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE) til að vinna áhersluverkefni fyrir árið 2020. Verkefnið nefnist Borgarhlutverk Akureyrar og verður unnið á þessu ári og því næsta.

Meginmarkmið verkefnisins er að afla gagna og vinna undirbúningsvinnu sem ætlað er að liggja til grundvallar við mótun borgarstefnu fyrir Akureyri, þ.m.t. að skilgreina svæðisbundið hlutverk Akureyrar sem stærsta þéttbýlis utan höfuðborgarsvæðisins.

Við mótun borgarstefnu er nauðsynlegt að skoða þær leiðir sem aðrar þjóðir hafa farið og kynna sér vel heppnaðar byggðaaðgerðir sem mikil reynsla er komin á. Þá er mikilvægt að líta til rannsókna og aðgerða s.s. þeirra sem varða virk borgasvæði (functional urban areas) og rýna í þá þætti sem renna styrkari stoðum undir slík svæði.