Fróðleg fræðsluferð til Falun

Dr. Ulf Hansson, Dr. Zuzana Macuchova og Sæunn Gísladóttir
Dr. Ulf Hansson, Dr. Zuzana Macuchova og Sæunn Gísladóttir

Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri, heimsótti norræna kollega í Falun í Dalarna í Svíþjóð 18. til 20. mars. Dalarna háskóli hefur verið samstarfsaðili okkar í samnorrænu NIKK rannsókninni Enhancing Labour Opportunities for Ukrainian Women in Rural Nordic Communities – case studies from Nordic regions, en á dögunum birti RHA  skýrslu upp úr þeirri rannsókn.

Markmiðið með heimsókninni til Dalarna var meðal annars að efla rannsóknatengsl við Háskólann í Dalarna, en alþjóðatengsl eru mikilvægur hluti af starfsemi RHA sem rannsóknarstofnun. Sæunn nýtti einnig tækifærið til að eiga vinnufund um NIKK rannsóknarverkefnið með kollegum sínum við Dalarna háskóla, Dr. Ulf Hansson og Dr. Zuzana Macuchova. Rannsóknarteymið stefnir að kynningu á verkefninu á ráðstefnu og var því tíminn nýttur til að þróa útdrátt til umsóknar. Einnig voru næstu skref rædd varðandi þróun og birtingu fræðigreinar um rannsóknina.

Sæunn hitti fleiri fræðimenn hjá Dalarna og var mikill áhugi hjá þeim að heimsækja Háskólann á Akureyri í framtíðinni og efla áfram tengsl milli skólanna. Dalarna háskóli var stofnaður árið 1977 og er með aðsetur bæði í Falun og Borlänge. Nemendur eru um 17.000 og stærsti hluti þeirra eru fjarnemar.