Heimasíða North Hunt opnuð

RHA – Rannsókna og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri er þáttakandi í 3 ára alþjóðlegu verkefni og kallast verkefnið North Hunt.

Þátttakendur í verkefninu eru 10 og koma frá 5 löndum Finnlandi, Svíþjóð, Kanada, Skotlandi og Íslandi. Verkefnið gengur út á þróun sjálfbærrar skotveiðitengdrar ferðaþjónustu á jaðarsvæðum á norðurslóðum. Markmið verkefnisins er að stuðla að fjölbreytni í atvinnulífi og skjóta frekari stoðum undir vaxandi atvinnugrein með þróun starfsumhverfis og rekstrargrundvallar fyrirtækja. Ennfremur er markmið verkefnisins að þróa starfsumhverfi fyrirtækja til að draga úr hindrunum sem mæta frumkvöðlum í þessari grein, án þess að minnka kröfur um sjálfbærni og umhverfisvænar veiðar.

RHA – Rannsókna og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri er þáttakandi í 3 ára alþjóðlegu verkefni og  kallast verkefnið North Hunt. Þátttakendur í verkefninu eru 10 og koma frá 5 löndum Finnlandi, Svíþjóð, Kanada, Skotlandi og Íslandi. Verkefnið gengur út á þróun sjálfbærrar skotveiðitengdrar ferðaþjónustu á jaðarsvæðum á norðurslóðum. Markmið verkefnisins er að stuðla að fjölbreytni í atvinnulífi og skjóta frekari stoðum undir vaxandi atvinnugrein með þróun starfsumhverfis og rekstrargrundvallar fyrirtækja. Ennfremur er markmið verkefnisins að þróa starfsumhverfi fyrirtækja til að draga úr hindrunum sem mæta frumkvöðlum í þessari grein, án þess að minnka kröfur um sjálfbærni og umhverfisvænar veiðar.
1. desember var ný og glæsileg heimasíða verkefnisins opnuð en heimasíðan er forrituð af  hugbúnaðarfyrirtækinu Stefnu á Akureyri í vefumsjónarkerfið Moya. Á heimasíðunni má nálgast allar frekari upplýsingar um verkefnið á íslensku, ensku, finnsku og sænsku.
www.north-hunt.org