Hjalti Jóhannesson með erindi í Gautaborg

Hjalti Jóhannesson, sérfræðingur hjá RHA, hélt erindi um SUNREM verkefnið.
Hjalti Jóhannesson, sérfræðingur hjá RHA, hélt erindi um SUNREM verkefnið.
Hjalti Jóhannesson, sérfræðingur hjá RHA, og Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við HA, sem vinna saman að verkefninu Sustainable Nordic Remote Labour Markets (SUNREM) kynntu bráðabirgðaniðurstöður úr SUNREM verkefninu á árlegri ráðstefnu Regional Studies Association sem haldin var í Gautaborg dagana 15.-18. júní.
 
Rannsóknin er gerð með samstarfsstofnunum í Álandseyjum, Noregi og Svíþjóð og fjallar um áhrif hnattrænna meginstrauma (global megatrends) á fámenna vinnumarkaði á landsbyggðarsvæðum.
 
Íslensku greiningardæmin eru Dalvíkurbyggð og Norðurþing. Nánar má kynna sér SUNREM verkefnið hér: Sustainable Nordic Remote Labour Markets (SUNREM) - Nordregio.