Kynning á samfélagsáhrifum á Austurlandi í sjónvarpinu

Frá Reyðarfirði
Frá Reyðarfirði
í þættinum Nýsköpun - íslensk vísindi mánudaginn 21. febrúar s.l. var m.a. fjallað um rannsókn á samfélagsáhrifum álvers- og virkjunarframkvæmda á Austurlandi sem RHA vann að á árabilinu 2004-2010. Greindi Hjalti Jóhannesson, verkefnisstjóri rannsóknarinnar þar frá helstu niðustöðum hennar í viðtali við Ara Trausta Guðmundsson.

Hægt er að nálgast skýrslur sem unnar voru á tímabilinu 2004-2010 hér á vef RHA.