Mjög margir kjósendur ennþá óákveðnir fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri

Fylgi framboða samkvæmt könnun RHA.
Fylgi framboða samkvæmt könnun RHA.

RHA lagði fyrir könnun meðal bæjarbúa á Akureyri dagana 25. apríl til 2. maí sl. Spurt var: Ef kosið yrði nú, hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa. Af þeim sem svöruðu voru rúmlega 30% ennþá óákveðin og 7,4% vildu ekki gefa upp sína afstöðu. Af þeim sem svöruðu ætla 16,7% að kjósa Sjálfstæðisflokkinn, 14,9% Samfylkinguna og 14,6% L-listann. Samkvæmt þessu fengju því þessir flokkar tvo menn kjörna í bæjarstjórn. Framsóknarflokkurinn mælist með 13% fylgi, Flokkur fólksins með 11,3%, Vinstri græn með 7,9%, Kattaframboðið með 7,8% og Miðflokkurinn með 7,4% og fá hvert um sig einn mann kjörinn. Píratar mælast með 6,4% og ná ekki inn manni samkvæmt þessu.  

 

Vegna hás hlutfall óákveðinna geta þessar tölur breyst talsvert þegar talið verður upp úr kössunum á kjördag. Alls svöruðu 398 spurningunni og af þeim voru 31,3% óákveðin, 7,4% vildu ekki svara og 1,1 % ætlar ekki að mæta á kjörstað.