Norðurorka styrkir Vísindaskóla unga fólksins

Anna Soffía Víkingsdóttir og Helgi Jóhannesson.
Anna Soffía Víkingsdóttir og Helgi Jóhannesson.

Norðurorka hefur verið mikilvægur stuðningsaðili við Vísindaskóla unga fólksins allt frá stofnun hans árið 2015. Eitt af þemum vísindaskólans á hverju ári tengjast orku og orkunýtingu á einhvern hátt. Að þessu sinni verður lögð áhersla á flug og hvernig flugvélar verða knúnar áfram í framtíðinni. Vísindaskólinn hefst mánudaginn 20. júní og er ætlaður börnum 11-13 ára.

Norðurorka og Vísindaskóli unga fólksins hafa undirritað samning til þriggja ára og var skrifað undir samning í húsakynnum Norðurorku á Rangárvöllum. Á myndinni eru Helgi Jóhannesson, framkvæmdastjóri Norðurorku og Anna Soffía Víkingsdóttir, verkefnastjóri Vísindaskóla unga fólksins.