Norrænir styrkjamöguleikar á ýmsum sviðum - kynningafundir 2. og 3. nóvember

Í tengslum við þing Norðurlandaráðs 2.-4. nóvember verða haldnir kynningafundir um samnorræna styrkjamöguleika á nokkrum sviðum. Margar samnorrænar stofnanir senda fulltrúa á þingið, og var tækifærið nýtt til þess að vera með sameiginlegar kynningar á þeim stofnunum sem veita mestu fé í styrki. Fundirnir eru skipulagðir í samvinnu við Norræna húsið. Fundirnir verða þrír og eru þemaskiptir, þ.e. um menningu og listir, um nýsköpun og rannsóknir og um umhverfis og orkumál.

2. nóvember kl. 15-17
Listaháskóli Íslands, húsnæði tónlistardeildar Sölvhólsgötu 13 (bakhús).

Styrkir til menningar og lista. Kynning á styrkjamöguleikum:
Norrænu menningargáttarinnar (Kulturkontakt Nord)
- Norræna menningarsjóðsins(Kulturfond)

3. nóvember kl. 9-11
Norræna húsið, Sturlugötu 5.

Styrkir til nýsköpunar og rannsókna. Kynning á styrkjamöguleikum:
- Norrænu nýsköpunarmiðstöðvarinnar (NICe)
- Norrænu rannsóknamiðstöðvarinnar (NordForsk)
- Norræna Atlantssamstarfsins (NORA)

3. nóvember kl. 14-16
Norræna húsið, Sturlugötu 5.

Styrkir til umhverfis- og orkumála. Kynning á styrkjamöguleikum:
- Norrænna orkurannsókna (NEF)
- Norræna umhverfisfjármögnunarfélagsins (NEFCO)
- Norræna þróunarsjóðsins (NDF)

 Styrkirnir eru fyrir fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og einstaklinga, þó breytilegt eftir sviðum.

Skráning á kynningarfundina fer fram á netfanginu: norden@nmi.is (nauðsynlegt er að tilkynna á hvaða fund verið er að skrá mætingu). Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir 1. nóvember.

Nánari upplýsingar um kynningafundina er að finna hér:
http://www.nmi.is/styrkir-og-studningsmoguleikar/norraenir-styrkir-og-studningsmoguleikar/norraent-samstarf/nr/1115/