Frá Húsavík þar sem fjarvinna dafnar vel. Mynd/HJ
Hjalti Jóhannesson, sérfræðingur hjá RHA, og Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við HA rituðu nýverið grein í tímaritið Regional Science Policy & Practice. Greinin sem kallast "Digitalization and remote work in peripheral labour markets in the Nordic region" fjallar um fjarvinnu og byggist á greiningu gagna úr rannsóknarverkefninu Sustainable Nordic Remote Labour Markets (SUNREM) sem er stundað með samstarfsstofnunum í Álandseyjum, Noregi og Svíþjóð. Verkefnið fjallar um áhrif hnattrænna meginstrauma (global megatrends) á fámenna vinnumarkaði á landsbyggðarsvæðum. Íslensku greiningardæmin í verkefninu eru Dalvíkurbyggð og Norðurþing. Nánar má kynna sér SUNREM verkefnið
hér.
Meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum greinarinnar er að fjarvinna er til staðar í öllum þeim norrænu tilvikum sem rannsökuð voru. Húsavík í Norðurþingi sker sig úr með vel þróuðum fjarvinnumiðstöðvum sem eru m.a.
Stéttin á Húsavík. Það eru skýr merki um að aðstaða þar sem fólk getur unnið og hitt aðra starfsmenn í fjarvinnu sé mikilvæg. Þetta gerir ráðningar fólks á viðkomandi vinnumarkað auðveldari, þar sem til dæmis geta makar nýtt sér þennan möguleika og flutt á fámennari staði. Uppbygging innviða fyrir fjarvinnu stuðlar að því að gera fámennari og afskekkta vinnumarkaði sjálfbærari.
Greinin er aðgengileg
hér.