Ný grein um rafmagnsflug eftir sérfræðinga hjá RHA

Heart Aerospace rafmagnsflugvél. Mynd/Heart Aerospace
Heart Aerospace rafmagnsflugvél. Mynd/Heart Aerospace

Sæunn Gísladóttir og Hjalti Jóhannesson, sérfræðingar hjá RHA, eru meðhöfundar í grein sem birtist nýverið í tímaritinu Journal of Rural Studies. Greinin sem kallast "Piloting Nordic connectivity: Examining perspectives on the potential of electric aviation to enhance accessibility and socio-economic development in Nordic remote rural regions" fjallar um rafmagnsflug og byggist á greiningu gagna úr rannsóknarverkefninu Electric Aviation and the Effects on Nordic Regions.

Rannsóknarverkefnið fór fram milli áranna 2022 og 2024 og var leitt af Nordregio, en RHA leiddi íslenska hluta rannsóknarinnar. Verkefnið fjallaði um tækifæri með rafmagnsflugi í dreifðari byggðum Norðurlandanna en fram kom að rafmagnsflug gæti raungerst innan áratugs og velt var upp hvaða áskoranir og tækifæri fælist í þessu á Norðurlöndum. Í íslenska hluta rannsóknarinnar var skoðaður möguleikinn á innleiðingu rafmagnsflugs á flugleiðinni Akureyri-Reykjavík. En þessi möguleiki var kannaður og unnin var upp úr honum tilviksrannsókn.

Meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum greinarinnar er að rafmagnsflug getur styrkt byggðaþróun á afskekktum svæðum á Norðurlöndum. Það getur stækkað markaði og aukið möguleika á grænni ferðaþjónustu, menntun og aðgengi að heilbrigðisþjónustu. En ávinningur af auknu aðgengi með rafmagnsflugi er háður félagslegum og tæknilegum aðstæðum.

Greinin er aðgengileg hér.