Nýr samstarfssamningur SAk og RHA

Laufey Hrólfsdóttir og Arnar Þór Jóhannesson. Mynd/SAk
Laufey Hrólfsdóttir og Arnar Þór Jóhannesson. Mynd/SAk

Samstarfssamningur Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) og Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Akureyri (RHA) hefur verið undirritaður.

Með samningnum staðfesta SAk og RHA sameiginlegan vilja til að efla samstarf á sviði rannsókna og fræðastarfs.

Markmiðið er að styðja við starfsfólk SAk í vísindavinnu og tryggja aðgang að faglegri ráðgjöf og sérfræðiþekkingu RHA.

„Með þessu samstarfi er stigið mikilvægt skref í átt að öflugri rannsóknarinnviðum,“ segir Laufey Hrólfsdóttir, deildarstjóri mennta- og vísindadeildar á SAk. . „Við viljum að starfsfólk SAk sem hefur áhuga á því að framkvæma vísindarannsókn og vinna að nýsköpun í heilbrigðiskerfinu fái góðan stuðning til að útfæra hugmyndir sínar.“

„Við hjá RHA hlökkum mikið til samstarfsins,“ segir Arnar Þór Jóhannesson, forstöðumaður RHA. „RHA hefur stundað rannsóknir og stutt við rannsóknir annarra í yfir 30 ár og við sjáum mikil tækifæri í því að tengjast enn betur því ört vaxandi vísindastarfi sem fer fram innan SAk.“