Ræddi áhrif hnattrænna meginstrauma í Árósum

Hjalti Jóhannesson, sérfræðingur hjá RHA, flytur erindi. Mynd/Nordregio
Hjalti Jóhannesson, sérfræðingur hjá RHA, flytur erindi. Mynd/Nordregio

Hjalti Jóhannesson, sérfræðingur hjá RHA tók þátt í Nordregio Forum 2026, sem kalla má rannsóknaþing Nordregio á íslensku. Nordregio er norræn fræðastofnun í skipulags- og byggðamálum sem starfar á vegum Norrænu raðherranefndarinnar og er staðsett í Stokkhólmi.

Rannsóknaþingið fór fram 17. og 18. nóvember í Árósum í Danmörku og tókst afar vel. Þátttakendur voru yfir 100 frá öllum Norðurlöndunum og voru m.a. margir frá Íslandi.

Hjalti tók að sér að vera commentator um erindi um áhrif hnattrænna meginstrauma (global megatrends) á vinnumarkaði á afskekktari svæðum "What does it take for remote labour markets to be sustainable?". Um var að ræða frásögn um verkefnið SUNREM - Sustainable remote labour markets sem RHA tekur einnig þátt í en það er styrkt af Nordforsk og stýrt af Nordregio.

Einnig tók Hjalti þátt í panelumræðum um spurninguna hvort betra sé fyrir svæði að vera með fjölbreytt atvinnulíf eða sérhæft atvinnulíf þegar einhver áföll verða í efnahagslífinu á borð við fjármálakreppuna 2008-2009 eða Covid-19 eða "Diverse or specialised labour markets: what works in a crisis?". Áður hafði verið kynnt erindi um greiningu Nordregio á viðfangsefninu á Norðurlöndunum með þeirri óvæntu niðurstöðu að það væri ekki óyggjandi hvort fjölbreyttari svæðum farnaðist betur en sérhæfðum við slíkar aðstæður.

Hér má nálgast nánari upplýsingar um Nordregio og Nordregio Forum 2026.