RANNSÓKNASJÓÐUR HÁSKÓLANS Á AKUREYRI AUGLÝSIR EFTIR UMSÓKNUM

Rannsóknasjóður Háskólans á Akureyri auglýsir hér með eftir umsóknum.

Umsóknareyðublað og reglur sjóðsins er að finna á heimasíðu RHA á slóðinni: http://www.rha.is/?mod=sidur&mod2=view&id=43

Umsækjendur athugi að hafi þeir sótt um styrk í sjóðinn áður og fengið úthlutað þá þarf framvindu- eða lokaskýrsla að liggja fyrir hjá sjóðstjórn áður en hægt er að afgreiða nýja umsókn.

Umsóknir og fylgigögn skulu vera í tvíriti og þurfa að berast til RHA – Stjórnsýsla rannsókna, Borgum v/Norðurslóð, fyrir kl. 12 mánudaginn 1. des. n.k. Einnig skal senda umsóknargögn rafrænt á netfangið: rannsoknir@unak.is. Séu umsóknargögn póstlögð þarf póststimpillinn að vera eigi síðar en 1. des.

Stjórn sjóðsins vill vekja athygli á því að síðustu ár hefur borið á því að umsóknir hafa ekki verið nægilega vel unnar og því skal athygli vakin á því að Rannsóknaþjónusta RHA veitir aðstoð við gerð umsókna að fengnu samþykki viðkomandi deildarforseta.

F.h. Rannsóknasjóðs Háskólans á Akureyri

Hjalti S. Hjaltason
Verkefnisstjóri
hjaltih@unak.is