Rannsókn á samfélagsáhrifum álvers- og virkjunarframkvæmda á Austurlandi - kynning

Fimmtudaginn 7. október verður kynnt á Reyðarfirði lokaskýrsla rannsóknar á samfélagsáhrifum á Austurlandi. Verkefnið stóð yfir frá árinu 2004 og eru skýrslur í verkefninu orðar alls níu talsins.  Á fundinum munu höfundar lokaskýrslu rannsóknarinnar gera grein fyrir helstu niðurstöðum hennar. Í rannsókninni hefur verið fylgst með þróun samfélagsþátta s.s. íbúafjölda, efnahag, vinnumarkaði, húsnæðismarkaði, opinberri grunngerð, sveitarfélögum, þjónustu, atvinnuháttabreytingum og samfélagi og lífsstíl. Allar skýrslur verkefnisins má finna hér á vefsíðu RHA.


Tími og staður:

7.október milli kl 10-12 í Fróðleiksmolanum (húsnæði Þekkingarnets Austurlands og AFLS), Búðareyri 1, Reyðarfirði.

 Dagskrá:

10.00   Fundarsetning, almenn kynning á fundarefni
10.05   Hjalti Jóhannesson, RHA: Afmörkun rannsóknar, íbúafjöldi og vinnumarkaður
10.30   Jón Þorvaldur Heiðarsson, RHA: Efnahagur og húsnæðismarkaður
10.50   Valtýr Sigurbjarnarson, RHA: Opinber grunngerð og sveitarfélög
           
11:20   Enok Jóhannsson, ÞFA: Þjónusta og atvinnuháttabreytingar
11:40   Kjartan Ólafsson, RHA og HA: Samfélag og lífsstíll