RHA meðal styrkþega Háskólasjóðs KEA

Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, afhentu 5,3 milljónir króna úr Háskólasjóði KEA við athöfn sem fram fór á Sólborg, húsnæði Háskólans á Akureyri við Norðurslóð 12. júní.

Þetta er í áttunda sinn sem úthlutað er úr Háskólasjóði KEA. Samkvæmt samkomulagi sem KEA og Háskólinn á Akureyri gerðu með sér eru veittir námsstyrkir, styrkir til rannsókna, búnaðarkaupa og sérverkefna. Einnig eru veitt verðlaun vegna námsárangurs til nemenda á hug- og félagsvísindasviði, heilbrigðisvísindasviði og viðskipta- og raunvísindasviði.

Við úthlutun er almennt horft til verkefna sem eru viðbót við samþykkta starfsemi HA og/eða samstarfsstofnana, þar sem verkefni fela í sér ný eða aukin tækifæri fyrir nemendur og starfsfólk og eru til þess fallin að efla byggð og tengingu við atvinnulíf, menningu eða náttúrufar félagssvæðisins.

Úthlutun námsstyrkja og verðlaun vegna námsárangurs voru samtals 7 og til úthlutunar voru rúmlega 1,1 milljón króna.

Umsóknir í flokki rannsókna, til búnaðarkaupa og sérverkefna voru 29 talsins og upphæðin sem sótt var um rúmar 23 milljónir. Tólf styrkir voru veittir en alls komu rúmar 4,2 milljónir til úthlutunar.

Eftirtalin rannsóknarverkefni fengu styrk úr Háskólasjóði KEA:

Samfélagssamheldni á Akureyri/Eyjafirði, Hug- og félagsvísindasvið- Birgir Guðmundsson, Kr. 200.000.

Lífsgildi, siðferði og samfélagsrammi sem liggja til grundvallar háskólakennslu í viðskiptafræðum Viðskipta- og raunvísindasvið- Hafdís Björg Hjálmarsdóttir, Kr. 400.000.

Erfðabreytileiki og stofnsveiflur rjúpunnar á Norðausturlandi, Viðskipta- og raunvísindasvið- Kristinn P. Magnússon, Kr. 300.000.

Örveruvistfræði Glerár og skimun eftir lífhreinsibakteríum, Viðskipta- og raunvísindasvið- Oddur Vilhelmsson, Kr. 400.000.

Félags -og efnahagsleg áhrif skotveiðitengdrar ferðaþjónustu, RHA- Hjördís Sigursteinsdóttir, Kr. 400.000.

Rannsóknasetur forvarna við Háskólann á Akureyri, Hug- og félagsvísindasvið- Þóroddur Bjarnason, Kr. 300.000.

Eftirtaldir fengu styrki til búnaðarkaupa:

Kaup á vatnseimingartæki, Viðskipta- og raunvísindasvið, Kr. 250.000.

Endurnýjun og viðbætur á tækjabúnaði fyrir sýnikennslu í hjúkrunarfræði á 1. og 2. ári og þjálfunar í líkamsmati, Heilbrigðisvísindasvið, kr. 300.000.

Kennslubúnaður fyrir atferlismótun gullfiska, Hug- og félagsvísindasvið, Kr. 50.000.

Kaup á hugbúnaðarforriti til skönnunar á rannsóknargögnum, RHA, Kr. 600.000. 

Styrkir vegna sérverkefna:

Markaðs- og kynningarsvið Háskólans á Akureyri, Kr. 500.000,- vegna heimildarþáttar um vísindi og Kr. 500.000,- til annarra verkefna á sviði markaðs- og kynningarmála.

Eftirtaldir nemar fengu styrki til meistaranáms við Háskólann á Akureyri:

Hug- og félagsvísindasvið, Anna Lilja Sigurvinsdóttir, Kr. 250.000.

Viðskipta- og raunvísindasvið, Halldór Pétur Ásbjörnsson, Kr. 250.000.

Viðskipta- og raunvísindasvið, Helga Rakel Guðrúnardóttir, Kr. 250.000. 

Hug- og félagsvísindasvið, Kristín Linda Jónsdóttir, Kr. 250.000. 

Eftirtaldir hlutu viðurkenningar fyrir góðan námsárangur:

Viðskipta- og raunvísindasvið: Arnhildur Ásdís Kolbeinsdóttir, Kr. 50.000. 

Heilbrigðisvísindasvið: Eva Mjöll Júlíusdóttir, Kr. 50.000.

Hug- og félagsvísindasvið: Karítas Jónsdóttir, Kr. 50.000.