Sigríður Bjarnadóttir og Lara Hoffmann á Höfn í Hornafirði.
Lara W. Hoffmann og Sigríður Bjarnadóttir frá RHA sóttu ráðstefnuna „Íslenska þjóðfélagið“ 17. – 18. apríl sem haldin var á Höfn í Hornafirði.
Sigríður kynnti erindið „Tvíeggjað sverð – leki óstaðbundinna starfa til höfuðborgarsvæðisins“, sem byggir á nýútgefinni skýrslu sem hún vann ásamt Hjalta Jóhannessyni og Arnari Þór Jóhannessyni.
Lara W. Hoffmann hélt erindið „We create a mountain of a language“: Myndlíkingar um íslensku í frásögnum innflytjenda og stefnuskjölum.