Sérfræðingur RHA kynnti Inngildingarverkefni

RHA tekur þátt í inngildingarverkefni opinberra háskóla. Í gær, 19. maí, kynntu Lara Hoffmann, sérfræðingur hjá RHA, og Joanna Marcinkowska, verkefnisstjóri hjá Háskóli Íslands sem stýrir verkefninu, inngildingarverkefnið fyrir NOCIES (Nordic Comparative and International Education Society).

Frábært var að fá tækifæri til að kynna verkefnið, niðurstöður um upplifun erlendra nemenda og þau verkfæri sem þróuð hafa verið fyrir kennara og starfsfólk á alþjóðlegum vettvangi.