Jafnréttisráð Háskólans á Akureyri hefur hlotið styrk frá dómsmálaráðuneytinu úr Framkvæmdasjóði hinsegin málefna. Styrkurinn styður við verkefni sem miða að því að stuðla að öruggara og inngildandi háskólasamfélagi þar sem nemendur með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu fá tækifæri til að deila upplifun sinni og hafa áhrif á háskólasamfélagið.
Haustið 2026 verða haldin rýnihópaviðtöl með nemendum HA til að öðlast betri skilning á reynslu þeirra, áskorunum og hugmyndum að úrbótum. Niðurstöðurnar munu nýtast til að efla velferð og inngildingu innan háskólasamfélagsins.
Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA) mun sjá um viðtölin og hvetur RHA áhugasama nemendur til að taka þátt og deila reynslu sinni.
Ef þú hefur þú áhuga á að taka þátt, hafðu endilega samband við Löru (laraw@unak.is) til að fá frekari upplýsingar!