Styrkur til að rannsaka kynjamun í notkun gervigreindar

Marta Einarsdóttir og Sæunn Gísladóttir
Marta Einarsdóttir og Sæunn Gísladóttir

Nýverið hlaut Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA), styrk frá Nordic Gender Equality Fund að upphæð 357.700 DKK, eða um 6,8 milljóna íslenskra króna.

Í verkefninu Gender differences in generative AI use among higher education students: A Nordic perspective rannsakar RHA undir forystu Sæunnar Gísladóttur og Mörtu Einarsdóttur hvernig háskólanemar í þremur Norðurlöndum nýta sér gervigreind og hvort um kynjamun sé að ræða í þessu samhengi. Kannanir verða framkvæmdir og sendar út til nemenda í Háskólanum á Akureyri, Dalarna háskóla í Svíþjóð og Inland háskóla í Noregi. Þá verða niðurstöður teknar saman í skýrslu og stefnt verður að því að kynna þær á málþingi á Jafnréttisdögum við Háskólann á Akureyri.

Samstarfsaðilar í rannsókninni eru Dalarna háskóli í Svíþjóð og Inland háskóli í Noregi. Magnús Smári Smárason, verkefnastjóri gervigreindar við Háskólann á Akureyri, mun veita verkefninu leiðsögn. Verkefnið stendur yfir frá haustinu 2026 til haustsins 2028.