Dagana 26. - 30. október síðastliðinn sótti Marta Einarsdóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA), námskeiðið Emotional Intelligence: Identify, Harness & Manage Emotions, sem haldið var á vegum ShipCon í hinni sólríku Barcelonaborg á Spáni. Námskeiðið var styrkt af Erasmus+ áætluninni og er ætlað starfsfólki menntastofnana, stjórnendum og öðrum sem vilja efla tilfinningagreind sína og bæta samskipti á vinnustað.
Tilfinningagreind (e. emotional intelligence) felur meðal annars í sér hæfni til að þekkja og skilja eigin tilfinningar og annarra, stjórna tilfinningalegum viðbrögðum og nýta þessa þekkingu í samskiptum og ákvarðanatöku. Auk þess að skipta miklu máli í daglegu lífi er tilfinningagreind mikilvæg í starfsumhverfi sem reynir á samstarf og samskipti.
Á námskeiðinu var meðal annars fjallað um:
- mikilvægi tilfinningagreindar í starfi og daglegum samskiptum
- tengsl hugsana, tilfinninga og hegðunar
- sjálfsvitund og leiðir til að takast á við sterkar tilfinningar
- virka hlustun, samkennd og árangursrík samskipti
- leiðir til að fyrirbyggja og leysa ágreining
- mikilvægi tilfinningagreindar í teymisvinnu og stjórnun
Námskeiðið gaf jafnframt tækifæri til að kynnast fólki í menntageiranum frá Möltu, Svíþjóð og Þýskalandi en slík samskipti eru mikilvægur þáttur í Erasmus+ námsdvölum.
Einnig vannst tími til að njóta þess sem Barcelona hefur upp á að bjóða eins og byggingarlistar Antoni Gaudi sem borgin er þekkt fyrir.
Segja má að Marta hafi strax þurft á tilfinningagreind að halda morguninn eftir að námskeiðinu lauk þegar hún var á leiðinni á flugvöllinn en lyftan á hótelinu bilaði og sat föst. Allt fór vel að lokum, Mörtu var bjargað úr lyftunni af hótelstarfsmanni og leigubílstjóranum sem mættur var til að fara með hana á flugvöllinn og hún náði fluginu heim.