Dagana 3. til 4. nóvember síðastliðinn fór fram ráðstefnana Nordic Energy Impact Days í Kaupmannahöfn, en ráðstefnan var skipulögð af Nordic Energy Research (NER).
Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri, og Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu, vinna um þessar mundir rannsóknarverkefnið Energising Nordic Equality fyrir NER og tóku að sér að sjá um vinnustofu um kynjajafnrétti í orkugeiranum á ráðstefnunni.
Vinnustofan heppnaðist vel og tóku um 100 þátttakendur á ráðstefnunni þátt í henni. Kynntar voru fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar Energising Nordic Equality og svo fór fram vinnustofa þar sem áhersla var lögð á tengslin milli markmiðasetningar og árangurs í jafnréttismálum. Greining fór fram á mismunandi víddum tengdum kynjajafnrétti í litlum hópum á borðum.
Á ráðstefnunni kynntu rannsakendur rannsóknir styrktar af NER svo sem á sviði vetnis og orkuskipta. Stefnt er að því að verkefninu sem Sæunn og Tryggvi vinna að ljúki fyrri hluta næsta árs.