Hjalti Jóhannesson, sérfræðingur hjá RHA, hélt erindi á ráðstefnunni.
Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA) tók virkan þátt í ráðstefnu Viðskiptadeildar HA þann 25. september sem var haldin undir fyrirsögninni „Svæði, byggðir og samfélög á Íslandi“. Þar var sagt frá tveimur verkefnum RHA í þremur fyrirlestrum.
SUNREM
verkefnið sem styrkt er af Nordforsk og RHA tekur þátt í ásamt aðilum í Svíþjóð, Noregi og Álandseyjum fjallar um áhrif hnattrænna meginstrauma (global megatrends) á vinnumarkaði á dreifbýlli svæðum. Sagt var frá verkefninu í tveimur fyrirlestrum:
Áhrif hnattvæðingar á vinnumarkaði á dreifbýlum svæðum. Dæmi frá Íslandi og Svíþjóð. Hjalti Jóhannesson, sérfræðingur hjá RHA og Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Viðskiptadeild HA. Sagt var frá tveimur vinnumörkuðum í sem eru til rannsóknar í verkefninu og sem hafa orðið fyrir áföllum vegna erlendrar samkeppni og alþjóðavæðingar. Þetta eru Norðurþing þar sem PCC Bakki Silicon
hætti framleiðslu árið 2025 og Northvolt rafhlöðuframleiðandans í Skellefteå sem varð
gjaldþrota sama ár.
Stafræn þróun og fjarvinna á dreifbýlum svæðum á Norðurlöndunum. Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Viðskiptadeild HA. Sagt var frá efni
greinar Grétars og Hjalta Jóhannessonar í ritrýndu tímariti með byggist á rannsóknum í
SUNREM-verkefninu.
Einnig var sagt frá verkefni um samanburð jarðganga á Mið-Austurlandi; mat á arðsemi, umferðaröryggi, tengingu svæða og byggðaþróun sem unnið var fyrir Vegagerðina árið 2025. Í verkefninu var beitt nálgun sem þróuð var innan og sem miðstöðin hefur oft beitt við greiningu á áhrifum samgöngubóta. Verkefnið
komst í fréttirnar undir árslok 2025 þegar innviðráðherra lagði fram samgönguáætlun sína með breyttum áherslum á forgangsröðun jarðganga:
Jarðgöng á Austurlandi. Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við Viðskiptadeild HA og Hjalti Jóhannesson, sérfræðingur hjá RHA.
Þessi tvö verkefni bera þess vitni að RHA hefur átt gott samstarf við akademíska starfsmenn háskólans um áralangt skeið. Þarna er um gagnkvæman ávinning að ræða; RHA og samfélagið allt fær aðgang að sérþekkingu akademískra starfsmanna og í leiðinni eflir þetta rannsóknir innan Háskólans á Akureyri. Í þessum tilvikum er um að ræða samstarf við fyrrum starfsmenn RHA sem hafa komið að rannsóknum RHA um áratugaskeið.