Vísindakaffi: Verður Eyjafjörður vaxtarbroddur Íslands?

Fimmtudaginn 24. september bjóða Rannís og Háskólinn á Akureyri í Vísindakaffi á Akureyri undir yfirskriftinni Verður Eyjafjörður vaxtarbroddur Íslands? Staðsetning: Friðrik V. kl. 20:00.

 

Í tilefni af Evrópuviku vísindanna bjóða nú Rannís og Háskólinn á Akureyri í fyrsta sinn í VÍSINDAKAFFI á AKUREYRI með yfirskriftinni: Verður Eyjafjörður vaxtarbroddur Íslands? á Friðriki V. kl. 20:00 fimmtudagskvöld.

 

Spekingar frá Háskólanum á Akureyri, þeir Hreiðar Þór Valtýsson, lektor, Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor, og Steingrímur Jónsson, prófessor munu spjalla um auðlindir Eyjafjarðarsvæðisins í víðasta skilningi og velta fyrir sér hvort og hvernig Eyjafjörður muni geta leitt okkur til velsældar um ókomna framtíð.

Eftir stutt spjall frá spekingunum mun útvarpsmaðurinn knái, Pétur Halldórsson, stýra umræðum. Öllum er velkomið að taka þátt í skemmtilegu og fræðandi spjalli og þiggja kaffi og með því.