60 nýir kollegar

Sæunn dvaldi hjá Nordregio í Stokkhólmi í tvo mánuði.
Sæunn dvaldi hjá Nordregio í Stokkhólmi í tvo mánuði.

Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA), lauk á dögunum tveggja mánaða norrænum starfsmannaskiptum hjá Nordregio. Sæunn dvaldi í Stokkhólmi frá 7. febrúar til 8. apríl og starfaði á meðan hjá Nordregio.

Nordregio er norræn fræðastofnun í skipulags- og byggðamálum sem starfar á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Hlutverk hennar er að stunda rannsóknir á sviði skipulags- og byggðamála auk þess að þróa og miðla þekkingu um byggða- og skipulagsmál til viðeigandi stofnana innan þessara málaflokka á Norðurlöndum. Hjá stofnuninni starfa tæplega 60 manns, þar af tveir Íslendingar.

Sæunn tók þátt í tveimur verkefnum Nordregio á meðan á dvölinni stóð, Powering resilience: Tackling energy vulnerabilities to improve regional self-sufficiency og Unlocking local benefits from green transition. Þá sótti hún reglulega starfsmannafundi og “call committee fund” þar sem farið var yfir hvaða verkefni stofnunin ætti að taka þátt í og hvaða rannsóknarstyrki hún ætti að sækjast eftir. Einnig aðstoðaði Sæunn við þýðingar yfir á íslensku á fréttatilkynningum í tengslum við State of the Nordic Region skýrsluna.

Margir sérfræðingar hjá Nordregio flytja til Stokkhólms vegna vinnunar og því er mikið gert til að efla félagslíf hjá stofnuninni. Nokkrir viðburðir fyrir starfsfólk fóru fram þegar Sæunn var í skiptunum, meðal annars spilakvöld og ljósmyndaklúbbur og tók hún þátt í skemmtilegri vínglasasmökkun eitt kvöldið með tæpum helmingi starfsmanna Nordregio.

Sæunn hélt hádegisfyrirlestur þann 31. mars 2026 þar sem hún kynnti niðurstöður samnorrænnar NIKK rannsóknar sem hún leiddi Enhancing labour opportunities for Ukrainian women in rural Nordic communities. Vel var mætt á fyrirlesturinn og mikill áhugi á efninu og því urðu góðar umræður í kjölfar kynningarinnar. Þá fór hún í viðtal hjá Nordregio um starfsmannaskiptin og var með Instagram Story yfirtöku hjá Háskólanum á Akureyri 31. mars þar sem hún sagði frá skiptunum og lífinu í Stokkhólmi. Einnig fór hún í viðtal á Rás 1 hjá Gígju Hólmgeirsdóttur í þættinum Víðsvegar meðan á skiptunum stóð. Sæunn nýtti einnig tækifærið meðan á Svíþjóðardvölinni stóð og heimsótti norræna kollega í Falun í Dalarna 18. til 20. mars. Dalarna háskóli hefur verið samstarfsaðili okkar í NIKK rannsókninni sem nefnd var hér að ofan.

„Ég er ótrúlega þakklát yfirmanni mínum hjá RHA að hafa stutt mig í að fara í þessi skipti og þakka fjármálaráðuneytinu fyrir að hafa fengið NORUT styrkinn sem gerði þetta tækifæri að raunveruleika. Ég hlakka til að halda áfram að vera í góðum tengslum við kollegana hjá Nordregio við heimkomu og vonandi vinna saman að nýju rannsóknarverkefni,” segir Sæunn um skiptin.