Verkefnið Samfélagsáhrif menningar í landsbyggðum: Lífsánægja, félagsleg tengsl og búseta hefur hlotið 3,8 milljóna króna styrk úr Byggðarannsóknasjóði 2026. Verkefnið er eitt af fimm verkefnum sem hlutu styrk að þessu sinni, en alls bárust 28 umsóknir í sjóðinn.
Verkefnið er leitt af Þorbjörgu Daphne Hall, prófessor við Listaháskóla Íslands (LHÍ), og unnið í samstarfi við Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG) og Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA). Að verkefninu koma auk Þorbjargar þær Erla Rún Guðmundsdóttir, forstöðukona RSSG, Steinunn Hauksdóttir, verkefnastjóri og rannsakandi hjá RSSG, og Lara Hoffmann, sérfræðingur hjá RHA og nýdoktor við Háskóla Íslands. Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi Eystra (SSNE) eru einnig samstarfsaðili í verkefninu.
Markmið rannsóknarinnar er að auka þekkingu á samfélagslegum áhrifum menningar, lista og skapandi greina og greina hvernig þátttaka í menningarlífi tengist lífsánægju, félagslegum tengslum og upplifun fólks af búsetu sinni. Rannsóknin byggir á blandaðri aðferðafræði þar sem annars vegar verður framkvæmd úrtakskönnun meðal almennings og hins vegar eigindleg gagnaöflun á Norðurlandi eystra með rýnihópum og viðtölum.
Sérstök áhersla verður lögð á að þróa og prófa mælikvarða fyrir samfélagsleg áhrif menningar og skapandi greina og skoða hvernig slík gögn og rannsóknarniðurstöður nýtast við stefnumótun og ákvarðanatöku. Verkefnið tengist markmiðum byggðaáætlunar um að efla rannsóknir á hagrænum og samfélagslegum áhrifum menningar og lista, ekki síst á landsbyggðinni.
Samstarf Listaháskóla Íslands, RSSG og RHA sameinar sérþekkingu á sviði lista- og menningarrannsókna, skapandi greina og byggða- og samfélagsrannsókna. Undirbúningur verkefnisins var unnin að frumkvæði Rannsóknaseturs skapandi greina en verkefnið byggir á samstarfi rannsóknahópsins. Undanfarin misseri hefur verið unnið að mótun rannsóknarinnar og hönnun spurningalista. Styrkurinn úr Byggðarannsóknasjóði gerir rannsakendum kleift að ráðast í framkvæmd og vonast er til að niðurstöðurnar skapi mikilvægan þekkingargrunn fyrir stjórnvöld, sveitarfélög, menningarstofnanir og aðra sem koma að stefnumótun og uppbyggingu menningarstarfs um land allt.