RHA - Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri er sjálfstæð eining innan Háskólans á Akureyri (HA) og hefur verið starfandi frá árinu 1992. Hlutverk okkar hefur frá upphafi verið að:
Starfsfólk RHA er vel menntað á margvíslegum sviðum og þar af leiðandi getum við tekið að okkur fjölbreytt verkefni. Gott aðgengi er að akademískum starfsmönnum HA sem eykur mjög getu okkar á ólíkum fagsviðum. Viðskiptavinir okkar og samstarfsaðilar er fjölbreyttur hópur sem tekur sífelldum breytingum. Rannsóknaáherslur og þörf fyrir rannsóknir taka mið af því hvernig samfélagið þróast og breytist á hverjum tíma.
Afrakstur rannsókna RHA er almennt aðgengilegur á vefsíðu miðstöðvarinnar í rafrænu formi (flokkað eftir árum).
Við leitumst við að aðlaga okkur að þörfum Háskólans á Akureyri og samfélagsins í víðum skilningi. Við erum opin fyrir hvers kyns samstarfi og leitum leiða til að greiða götu þeirra sem hafa hug á að nýta þjónustu okkar á sviði rannsókna. Hafa má samband á rha@unak.is í s. 460-8900 eða beint til einstakra starfsmanna.